Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018

Úrskurður velferðarráðuneytis

Miðvikudaginn 9. mars 2011 var í velferðarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

 

ú r s k u r ð u r

Með erindi, dags. 30. september 2009, til félags- og tryggingamálaráðuneytis, síðar velferðarráðuneytis, sbr. lög nr. 121/2010, um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, með síðari breytingum, kærði Fiskval ehf., kt. 560185-0229, fyrir sína hönd sem og fyrir hönd , sem er úkraínskur ríkisborgari, fd.  […], ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. september 2009, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa  […], í því skyni að ráða sig til starfa hjá Fiskvali ehf.

I. Málavextir og málsástæður.

Mál þetta varðar synjun Vinnumálastofnunar á veitingu tímabundins atvinnuleyfis, til handa  […], sem er úkraínskur ríkisborgari, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Fiskvali ehf. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu atvinnuleyfisins með vísan til 12. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sbr. a-lið 1. mgr. 7. gr. sömu laga.

Þeirri ákvörðun vildi kærandi ekki una og kærði hana til ráðuneytisins. Í erindi kæranda kemur fram að sótt hafi verið um atvinnuleyfi vegna fjölskyldusameiningar en maki umrædds útlendings hafi óbundið atvinnuleyfi hér á landi. Enn fremur kemur fram að maki umrædds útlendings hafi starfað hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda í fjögur ár og sé góður flakari. Þá kemur fram að þrátt fyrir atvinnuleysi hér á landi sæki fólk almennt ekki um laus störf við fiskvinnslu. Sæki atvinnulausir um slík störf sé það einungis gert með tímabundna ráðningu í huga en það taki hins vegar að minnsta kosti ár að þjálfa upp góðan flakara.  

Erindi kæranda var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 12. október 2009, og barst svarbréf stofnunarinnar 20. október sama ár. Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur fram að sótt hafi verið um tímabundið atvinnuleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar og því sé stofnuninni kunnugt um fjölskyldutengsl umrædds útlendings hér á landi. Þó verði að líta til þess að atvinnuleysi hafi aukist hröðum skrefum og skráð atvinnuleysi í september 2009 hafi verið 7,2% sem og að mjög slæmar horfur séu á íslenskum vinnumarkaði í náinni framtíð. Í umsögn sinni ítrekar Vinnumálastofnun afstöðu sína til málsins sem fram kemur í synjunarbréfi stofnunarinnar, dags. 14. september 2009, þess efnis að samkvæmt lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sé heimilt að veita leyfi til að ráða útlendinga til starfa hérlendis að uppfylltum tilteknum skilyrðum, svo sem að kunnáttumenn verði ekki fengnir innanlands eða að atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl. Bendir stofnunin á að íslenskur vinnumarkaður sé hluti af sameiginlegum vinnumarkaði innan Evrópska efnahagssvæðisins á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Samkvæmt ákvæðum laga nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, þurfi ríkisborgarar aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið ekki atvinnuleyfi hér á landi og njóti þeir forgangs að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði fram yfir ríkisborgara annarra ríkja. Eigi það einnig við um ríkisborgara ríkja sem urðu aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið 1. maí 2004, sbr. viðauka B við aðildarsamning EES. Áður en Vinnumálastofnun geti veitt atvinnuleyfi beri atvinnurekanda því að hafa óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að vinnuafli, þar á meðal aðstoð vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Að mati stofnunarinnar hafi umrædd skilyrði ekki verið uppfyllt í máli þessu. Tekur stofnunin fram að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi ekki óskað eftir aðstoð Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, við leit að starfsmanni í umrætt starf en vinnumiðlunin telji auðvelt að finna starfsfólk innan Evrópska efnahagssvæðisins til að gegna sambærilegum störfum og hér um ræðir. Stofnunin telji því ekki fullreynt að ráða einstakling í starfið sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Í ljósi þess sem að framan greinir og stefnu stjórnvalda telur Vinnumálastofnun því ekki heimilt að veita atvinnuleyfi til útlendinga sem eru ríkisborgarar ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins nema mjög ríkar ástæður séu fyrir hendi. Með tilliti til vinnumarkaðssjónarmiða telur stofnunin slíkar ástæður ekki vera fyrir hendi í máli þessu.

Með vísan til framangreinds telur Vinnumálastofnun að stofnuninni hafi borið að synja um umrætt atvinnuleyfi.

Með bréfi, dags. 26. október 2009, var kæranda gefinn kostur á að gera athugasemdir við umsögn Vinnumálastofnunar. Í tölvubréfi frá kæranda, sem barst ráðuneytinu 5. nóvember 2009, kemur fram að kærandi geri sér grein fyrir því mikla atvinnuleysi sem sé til staðar hér á landi og að sótt verði á ný um atvinnuleyfi fyrir umræddan útlending þegar atvinnuleysi hér á landi minnki aftur. Þar sem ekki þótti ljóst af fyrrnefndu tölvubréfi hvort kærandi hefði afturkallað umrædda stjórnsýslukæru hafði starfsmaður ráðuneytisins samband símleiðis við kæranda sama dag og tölvubréfið barst ráðuneytinu. Í því símtali kom meðal annars fram að um misskilning hefði verið að ræða þar sem kærandi taldi að með umsögn Vinnumálastofnunar væri málinu lokið innan stjórnsýslunnar. Starfsmaður ráðuneytisins upplýsti kæranda því um málsmeðferðina innan ráðuneytisins, þar á meðal hvað varðar gagnaöflun. Í kjölfar þess óskaði kærandi eftir að málið yrði tekið til endanlegrar afgreiðslu hjá ráðuneytinu og ítrekaði þegar fram komin sjónarmið sín í málinu. Í fyrrnefndu símtali upplýsti kærandi starfsmann ráðuneytisins enn fremur um að ekki væri að vænta frekari gagna frá kæranda í máli þessu.

Með tölvubréfi, dags. 29. október 2010, óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum frá Vinnumálastofnun um hvers konar atvinnuleyfi stofnunin hafi veitt maka umrædds útlendings. Í svari Vinnumálastofnunar, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi, dags. 1. nóvember 2010, kemur fram að 2. september 2009 hafi stofnunin veitt maka umrædds útlendings óbundið atvinnuleyfi hér á landi.

II. Niðurstaða.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun eða afturköllun atvinnuleyfis var heimilt að kæra til félags- og tryggingamálaráðuneytis, síðar velferðarráðuneytis, sbr. 34. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sbr. einnig lög nr. 162/2010, um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar ráðuneyta, og lög nr. 121/2010, um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, með síðari breytingum.

Atvinnuleyfi vegna starfa útlendinga eru veitt í samræmi við lög, reglugerðir settar með heimild í þeim og stefnu íslenskra stjórnvalda hverju sinni að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga þeirra. Samkvæmt 12. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, er heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna starfa nánustu aðstandenda útlendings sem hefur tímabundið atvinnuleyfi skv. 8. gr. laganna, tímabundið atvinnuleyfi sem tengist dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 11. gr. laganna eða óbundið atvinnuleyfi. Í því skyni að meta hverjir teljast nánustu aðstandendur samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, ber að líta til skilgreiningar laga um útlendinga, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum. Í gögnum málsins kemur fram að Vinnumálastofnun hafi veitt maka umrædds útlendings óbundið atvinnuleyfi hér á landi.

Skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis á grundvelli 12. gr. laganna eru meðal annars að skilyrði 1. mgr. 7. gr. laganna séu uppfyllt. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. laganna er það skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að starfsfólk fáist hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins eða aðrar sérstakar ástæður mæli með veitingu atvinnuleyfis. Tekið er fram að áður en atvinnuleyfi er veitt beri atvinnurekanda að hafa leitað eftir starfsfólki með aðstoð Vinnumálastofnunar nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati stofnunarinnar. Þá er það skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis á grundvelli 12. gr. laganna að áður hafi verið veitt dvalarleyfi samkvæmt ákvæðum laga um útlendinga um dvalarleyfi fyrir aðstandendur.

Í athugasemdum við 5. gr. frumvarps þess er varð að gildandi 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, kemur fram að áfram sé „gert ráð fyrir að við veitingu tímabundinna atvinnuleyfa verði litið til aðstæðna í atvinnumálum á innlendum vinnumarkaði sem og til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu og samningi milli ríkisstjórnar Íslands annars vegar og ríkisstjórnar Danmerkur og heimastjórnar Færeyja hins vegar.“ Enn fremur er tekið fram að atvinnurekandi verði að færa rök fyrir nauðsyn þess að ráða til sín erlenda starfsmenn sem ekki eru ríkisborgarar í ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins, í EFTA-ríkjum og í Færeyjum. Í því sambandi verði atvinnurekandi að gera grein fyrir þeim tilraunum sem hann hafi gert til að ráða fólk sem þegar hefur aðgengi að íslenskum vinnumarkaði. Jafnframt er lögð áhersla á að í tilvikum er starfsmenn fást ekki á innlendum vinnumarkaði leiti atvinnurekendur eftir starfsmönnum innan svæðisins með aðstoð Vinnumálastofnunar með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, áður en leitað er út fyrir svæðið eftir starfsmönnum. Þá segir að það falli „í hlut Vinnumálastofnunar að kanna sjálfstætt áður en atvinnuleyfi er veitt hvert atvinnuástandið innan lands er á hverjum tíma og hvort útséð er um að vinnuafl fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, frá EFTA-ríkjum eða Færeyjum, sbr. a-lið 1. mgr. ákvæðis þessa, enda hlutverk stofnunarinnar að fylgjast með atvinnuástandi í landinu í því skyni að koma í veg fyrir atvinnuleysi eins og frekast er unnt.

Af efni ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, má því ráða að mat Vinnumálastofnunar á því hvort skilyrði ákvæðisins fyrir veitingu tímabundinna atvinnuleyfa séu uppfyllt skuli aðallega byggjast á aðstæðum á innlendum vinnumarkaði hverju sinni sem og hvort starfsfólk fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, EFTA-ríkja eða Færeyja. Þar á meðal er átt við hið lögbundna hlutverk Vinnumálastofnunar að meta hvort leit atvinnurekanda að starfsmanni, sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði, sé fyrirsjáanlega árangurslaus og þar með ekki nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis.

Við veitingu tímabundins atvinnuleyfis á grundvelli fjölskyldusameiningar skv. 12. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, er þó heimilt að víkja frá skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laganna. Í máli þessu taldi Vinnumálastofnun ekki forsendur til að víkja frá þeim skilyrðum laganna þar sem atvinnuleysi hafi aukist mjög hér á landi og því að mati stofnunarinnar nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis á grundvelli fjölskyldusameiningar að atvinnurekandi hafi áður óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsfólki.

Ráðuneytið lítur svo á að meginreglan við veitingu tímabundins atvinnuleyfis á grundvelli fjölskyldusameiningar sé að skilyrði 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, séu uppfyllt enda einungis gert ráð fyrir að heimilt sé að víkja frá a-lið 1. mgr. 7. gr. laganna. Ákvæðið tilgreinir þó ekki við hvaða aðstæður þessi undanþága á við. Að teknu tilliti til almennra lögskýringarsjónarmiða telur ráðuneytið að líta verði svo á að skýra beri umrædda undanþágu þröngri lögskýringu. Ákvæði 12. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, kom inn í lögin sem nýmæli með lögum nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, enda þótt það hafi átt ákveðna samsvörun í 2. mgr. 7. gr. eldri laga um atvinnuréttindi útlendinga.

Við mat á því í hvaða tilvikum vikið verði frá skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, við veitingu tímabundinna atvinnuleyfa á grundvelli fjölskyldusameiningar verður að líta til athugasemda við frumvarp það er að varð að lögum nr. 78/2008. Í athugasemdum við 7. gr. d frumvarpsins er varð að 12. gr. gildandi laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, er ekki að finna leiðbeiningar um til hvaða sjónarmiða Vinnumálastofnun beri að líta við mat sitt á því í hvaða tilvikum vikið verði frá skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum. Í almennum athugasemdum við frumvarpið kemur eingöngu fram að gert sé ráð fyrir að nánustu aðstandendur geti fylgt til landsins útlendingum sem koma hingað til starfa eða eru hér við störf á grundvelli tiltekinna atvinnuleyfa, þar á meðal óbundinna atvinnuleyfa. Engu síður verður jafnframt til þess að líta að lögin gera ráð fyrir að meginreglan við veitingu atvinnuleyfa vegna starfa nánustu aðstandenda sé að skilyrði a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, séu uppfyllt en við framkvæmd laganna ber Vinnumálastofnun almennt að líta til aðstæðna á vinnumarkaði sem og í rekstri atvinnurekanda en ekki ástæðna er lúta að útlendingnum sjálfum.

Það er því álit ráðuneytisins að við veitingu tímabundinna atvinnuleyfa á grundvelli fjölskyldusameiningar beri að líta til tilgangs ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, við mat á því hvort unnt sé að víkja frá skilyrðum ákvæðisins en þar er áhersla lögð á að litið sé til aðstæðna á innlendum vinnumarkaði áður en tímabundin atvinnuleyfi eru veitt eins og að framan er rakið. Er Vinnumálastofnun meðal annars falið að kanna sjálfstætt áður en atvinnuleyfi er veitt hvert atvinnuástandið innanlands er á hverjum tíma enda eitt af hlutverkum stofnunarinnar að fylgjast með atvinnuástandi í landinu í því skyni að koma í veg fyrir atvinnuleysi eins og frekast er unnt.

Við framkvæmd laganna um atvinnuréttindi útlendinga hefur verið lögð áhersla á mikilvægi þess að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli á innlendum vinnumarkaði sé viðhaldið. Er því jafnframt þýðingarmikið að horfa til þeirra langtímaáhrifa sem útgáfa tímabundinna atvinnuleyfa getur haft á jafnvægi á vinnumarkaði. Ljóst er að aðstæður á innlendum vinnumarkaði breyttust mjög hratt á haustmánuðum 2008 þegar skráð atvinnuleysi jókst umtalsvert. Frá september 2008 til janúar 2009 fór skráð atvinnuleysi úr 1,3% í 6,6% og jókst skráð atvinnuleysi hér á landi fram til apríl 2009 er það mældist 9,1%. Nokkrar sveiflur hafa verið í skráðu atvinnuleysi en það hefur þó ekki mælst lægra en 7% síðan í febrúar 2009. Í janúar 2011 var skráð atvinnuleysi 8,5% á innlendum vinnumarkaði sem jafngildir því að 13.458 einstaklingar hafi að meðaltali verið án atvinnu þann mánuðinn, sbr. skýrslu Vinnumálastofnunar yfir atvinnuástand nr. 1/2011.

Að teknu tilliti til framangreinds er það því álit ráðuneytisins að við þær aðstæður sem hafa verið uppi á innlendum vinnumarkaði frá því í október 2008 og vara enn fari það, að víkja frá skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttingi útlendinga, með síðari breytingum, við veitingu tímabundinna atvinnuleyfa á grundvelli fjölskyldusameiningar, gegn þeim sjónarmiðum sem lögin um atvinnuréttindi útlendinga byggjast aðallega á. Í máli þessu verði því ekki vikið frá þeim vinnumarkaðsskilyrðum sem fram koma í a-lið 1. mgr. 7. gr. laganna og því eigi meginregla 12. gr. laganna við um að skilyrðum 1. mgr. 7. gr. laganna séu uppfyllt áður en Vinnumálastofnun er heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi á grundvelli ákvæðisins.

Að teknu tilliti til framangreinds er beiðni um aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði því lögbundið skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis á grundvelli fjölskyldusameiningar í máli þessu nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati stofnunarinnar. Í ágúst 2009 voru að meðaltali 13.387 einstaklingar á atvinnuleysisskrá hér á landi samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun, sbr. skýrslu stofnunarinnar yfir atvinnuástand, nr. 8/2009, en það jafngildir 7,7% skráðu atvinnuleysi á þeim tíma. Á sama tíma var skráð atvinnuleysi á Suðurnesjum 11,4% sem jafngildir því að 1.312 einstaklingar hafi verið þar án atvinnu að meðaltali.

Við mat á því hvort skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sé fullnægt ber Vinnumálastofnun jafnframt að líta til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig 2. gr. sömu laga. Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að skapa skilyrði fyrir fulla atvinnu, bætt lífskjör og bætt starfsskilyrði á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. einnig lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum. Ákvæði 28.–30. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið fjalla síðan sérstaklega um frjálsa för launafólks sem nánar eru útfærð í gerðum um þetta efni og hafa verið felldar undir V. viðauka við samninginn. Samkvæmt reglugerð nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem innleidd var í íslenskan rétt með lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, skal sérhver ríkisborgari annars aðildarríkis njóta þeirra réttinda að ráða sig til starfa á yfirráðasvæði annars aðildarríkis með sama forgangsrétti og ríkisborgarar þess ríkis. Er þar jafnframt kveðið á um náið samstarf vinnumiðlana aðildarríkjanna um miðlun lausra starfa innan svæðisins. Það telst því felast í skuldbindingum íslenskra stjórnvalda samkvæmt framangreindum samningi að þau veiti launamönnum sem eru ríkisborgarar annarra aðildarríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins sama aðgang og íslenskir ríkisborgarar hafa að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði og þar með forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að þeim störfum.

Það er því jafnframt lögbundið skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis á grundvelli fjölskyldusameiningar að atvinnurekandi hafi áður leitað aðstoðar Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, eftir að leit hans innanlands hefur ekki skilað árangri. Jafnframt eru gerðar ríkar kröfur til atvinnurekenda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Verður því ekki annað séð en að mat Vinnumálastofnunar um að hlutaðeigandi atvinnurekanda hafi borið að óska eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsmanni á innlendum vinnumarkaði hafi byggst á málefnalegum sjónarmiðum. Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur hins vegar fram að atvinnurekandinn hafi ekki óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsmanni til að gegna umræddu starfi, hvorki innanlands né af Evrópska efnahagssvæðinu með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Þessu hefur atvinnurekandinn ekki mótmælt. Jafnframt kemur fram í umsögn Vinnumálastofnunar að Eures,vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, telji auðvelt að finna starfsfólk innan Evrópska efnahagssvæðisins til að gegna sambærilegum störfum og hér um ræðir.

Samkvæmt ákvæði a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, geta aðrar sérstakar ástæður mælt með leyfisveitingu. Í athugasemdum við 5. gr. frumvarps þess er varð að gildandi 7. gr. laganna, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, er tekið fram að gert sé ráð fyrir að „Vinnumálastofnun verði áfram heimilt að líta til sérstakra ástæðna fyrir ráðningu útlendings við veitingu atvinnuleyfa en þá er við það miðað að þýðingarmikið sé fyrir rekstur atvinnurekanda að fá hlutaðeigandi útlending til starfa tímabundið. Með þessu er ekki átt við ástæður sem lúta að útlendingnum sjálfum eða aðstæðum hans.

Í gögnum málsins kemur fram að Vinnumálastofnun hafi veitt maka umrædds útlendings óbundið atvinnuleyfi hér á landi. Jafnframt kemur fram í gögnum málsins að maki umrædds útlendings starfi hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda sem flakari. Með vísan til framangreindra lögskýringargagna lítur ráðuneytið almennt svo á að fjölskyldutengsl útlendinga við fólk hér á landi teljist ekki til málefnalegra sjónarmiða sem réttlæta að atvinnurekendur geti haft sérstakan hag af því og þar með að það sé þýðingarmikið fyrir rekstur atvinnurekanda að ráða tiltekinn útlending til starfa.

Þegar litið er til aðstæðna á innlendum vinnumarkaði, þess að hlutaðeigandi atvinnurekandi hefur ekki óskað eftir aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsmanni til að gegna umræddu starfi, hvorki innanlands né af Evrópska efnahagssvæðinu með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, almennra lögskýringasjónarmiða sem og gagna málsins í heild, er það mat ráðuneytisins að í máli þessu hafi ekki verið nægjanlega sýnt fram á að fullreynt hafi verið að ráða einstakling í starfið af innlendum vinnumarkaði eða af Evrópska efnahagssvæðinu sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Með vísan til framangreinds er það því niðurstaða ráðuneytisins að í máli þessu verði ekki á grundvelli 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, vikið frá þeim vinnumarkaðsskilyrðum sem fram koma í a-lið 1. mgr. 7. gr. laganna. Jafnframt er það því niðurstaða ráðuneytisins að skilyrðum fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis á grundvelli 12. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sbr. a-lið 1. mgr. 7. gr. laganna, sé ekki fullnægt í máli þessu.

Uppkvaðning úrskurðar þessa hefur dregist vegna mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. september 2009, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa  […], sem er úkraínskur ríkisborgari, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Fiskvali ehf., skal standa.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum